Rauða Þruman og man of the minute
Hilsen fra Krabbesholm, Skive, Denmark!
Útskrift=gott. GIN og Tonic=Magnað gott
<description>Útskriftarfögnuður Böðvars og Ívars Péturs verður haldinn annað
kvöld, eða laugardaginn 20 maí í Herðubreið í hinum fagra
Seyðisfirði. Frítt er inn og mega þeir sem skilaboð fengu koma og
einnig þeir sem telja sig eiga skilið að koma. Enginn bar verður á
staðnum og verða menn því að sjá um sín vökvamál sjálfir. Einnig
verður hart barist um DJ dæmið en heyrst hefur að um fimm manns
ætli sér að sjá um það og forvitnilegt verður að fylgjast með hver
verður lengst. Meðal DJ-a verða meðal annars hinn víðsfrægi DJ
stóðhestur og DJ GASOLIN. Einnig hefur heyrst að DJ MAXWELL ætli að
mæta en það verður bara að koma í ljós. Hæfilegt er að menn komi um
svona 11- 12 leitið en ég býst við því að það hafi staðið í
skilaboðunum. Takk fyrir.
Fuck Roskilde!
Manchester í Tennessee í júní hins vegar. Spurning um að fara bara
Ný skoðanakönnun
Hér eru annars niðurstöður úr síðustu könnun sem eru vægast sagt
Besti markmaðurinn
<description>Einn leikmaður hins nýja en gífurlega efnilega knattspyrnufélags
06. Apríls kom til sögu á stórmóti um helgina. Sá maður er hinn
ævintýralegi Böðvar Pétursson. Stórmótið var fjölskyldumót Hugins.
Böðvar, sem upphaflega leikur sem miðjumaður eða kantmaður var
öllum að óvörum látin leika sem markmaður en eins og sumir vita er
Böðvar einnig þriðji markvörður 06. Apríls á eftir aðalmarkverðinum
Ívari Pétri Kjartansyni sem lék á yngri árum með barna og
unglingadeild hins Belgíska félags K Racing Club Genk, betur þekkt
sem bara Genk. Hann þótti gríðarlega efnilegur en þessi drengur,
sem þá var aðeins níu ára gutti, heimtaði gífurlega há laun sem
Genk gat alls ekki greitt honum og var því sendur aftur heim á
klakann þar sem hann datt í flöskuna. Margir íþróttaspekingar telja
þetta tækifæri sem hann fær með 06. Apríl vera það síðasta sem Ívar
á eftir að fá í knattspyrnuheiminum og vona að þessi áður bjartasta
stjarna Íslands eigi eftir að blómstra þar. Markamaður númer tvö
hjá 06. Apríl er hinn liðugi og kattsnöggi Friðjón Magnússon sem
tekið hefur upp skóna að nýju eftir tveggja ára fjarveru. Þó svo að
Friðjón hafi ekki komist á reynslu hjá erlendu félagi fyrir átta
ára aldurinn eins og Ívar, þá bætir hann upp fyrir það með því að
hann komst á reynslu hjá erlendu félagi fyrir ellefu ára aldurinn.
Það félag var hið Skoska Queens of the South. Það gekk ekki vel því
eftir aðeins þriggja mánaða dvöl hjá liðinu lenti hann upp á kant
við formann félagsins og var rekin frá félaginu. Hann endaði einnig
í flöskunni. En aftur að mótinu. Böðvar sýndi gífurlega takta og
maður verður að spyrja sig afhverju hið ítalska félag Messina lét
hann fara frá sér þegar hann var þar á reynslu aðeins fimm ára að
aldri. Hann lét það sér alls ekki nægja og setti tvö mörk fyrir
liðið sitt. Þó svo að Böðvar hafi verið valinn besti markmaðurinn á
mótinu, voru fleiri í liðinu sem létu til sín taka. Í þeim hópi
voru Márus sem endaði sem markahæsti maður liðsins, varnarjaxlarnir
þær Kolbrún og Eva, Jóna sem var gífurlega skæð að vanda og hinn
knái og gífurlega efnilegi Daníel sem átti góða spretti og var
gífurlega baráttuglaður. En þrátt fyrir góða spretti í markinu í
gegnum allt mótið þoldi Böðvar ekki pressuna í úrslitaleiknum sem
fór í golden goal framlengingu og missti boltan klaufalega framhjá
sér. Eftir þetta datt hann í flöskuna og eru björgunarmenn að
undirbúa aðgerð til að ná honum upp.
Opinber afsökunarbeiðni
<description>Mér hefur verið veitt athygli á því að síðasta laugardagskvöld hafi
ég ekki hagað mér eins og herramanni sæmir og biðst ég afsökunar á
því. Mér hefur verið sagt að ég hafi slegið vini mína utan undir
þar sem þeir sátu við borð og gerðu ekkert á minn hlut. Svona
hegðun er að sjálfsögðu óásættanleg og heiti ég því að hart verður
tekið á þessu máli. Einnig vil ég biðjast afsökunar á því að hafa
hrætt Hjalta Jón með ósæmilegum köllum í hans garð. Bergþór varð
líka fyrir barðinu á þessum köllum en ég vil ekkert biðja hann
afsökunar því hann fór snemma heim eins og alltaf og átti því bara
þetta skilið. Svo frétti ég líka af því að ég hefði hringt í hann
Heimi félaga minn og átt einhver orðaskipti við hann og ef þau voru
Nú tel ég að þessari afsökunarbeiðni sé lokið og ætla ég að fara að
6.apríl - Óli
      verður haldið hátíðlega upp á apríl. En ég fer frekar í það
Óli var fundinn upp þegar ég var á mínu öðru ári í ME. Þessi leikur
var stundaður á 200 gangi neðri heimavistarinnar en hann er mjög
einfaldur og því er engin afsökun fyrir því að geta ekki stundað
Ég man nú ekki nákvæmlega hverjir voru eiginlegir stofnendur
leiksins en Böðvar og Sveinbjörn eru líklegir kandídatar.
hálfum meter frá þeim stað sem kastað er frá. Honum má semsagt ekki
kasta heldur verður hann að rúlla. Stig eru gefin fyrir lengd og
hentugast þykir að láta tíkallinn ekki snerta veggi gangsins, enda
þykir það draga úr árangri. Ef tíkallinn komst út allan ganginn
fékkst Óli. Ef hann fór fram hjá lyftunni og upp þröskuldinn fékkst
Óli Péturs/Sílikon. Ef tíkallinn endaði svo undir sófanum frammi á
sal fékkst Óli Mundu. Fleiri stigagjafir voru og voru þær allar
kenndar við einhvern Óla en ég man ekki frekari skilgreingu á
Stundun leiksins hefur leitt í ljós að 1986-árgangur 10kalla
framkallaði betri árangur en t.d. ´94 og ´97 árgangar tíkallanna,
enda ríkir augljóslega í þeim mikil reynsla. Því miður er fátt um
þessi eintök svo best er að halda þessum eintökum tíkalla ef þú
06.apríl, sem hér eftir verður hátíðisdagur. Í kvöld klukkan 20.00
var stofnfundur nýs knattspyrnufélags settur í herbergi 310 á
heimavist ME. Þar voru mættir reyðfirðingar, seyðfirðingar,
eskfirðingar, fáskrúðsfirðingur og breiðdælingur. Þeir höfðu það
allir sameiginlegt að hafa áhuga á að spila fótbolta í góðum
félagsskap og höfðu sameinast í þeirri ákvörðun að setja á stofn
nýtt félag og skrá það í utandeildarkeppni. Félagið mun ganga undir
Rætt var um ýmis málefni og mun það koma fram seinna á bloggsíðu
Liðsmenn voru afar samheldnir þar sem boðið var upp á veitingar og
fögnuðu menn ákaft við stofnsetningu þessa klúbbs sem á vafalaust
Asnalegt nammi
<description>Um daginn eða réttara á mánudaginn síðasta komst ég loksins að
niðurstöðu við mikilvægustu spurningu okkar tíma, hvað er
leiðinlegasta nammið. Það var eiginlega aldrei nein spurning um
hvaða nammi mundi hljóta þennan titil. Jawbreaker eða kjálkabrjótur
er án efa eitt það allra leiðinlegasta nammi sem sögur fara af og
er það mikil furða að þetta skuli hafa verið búið til og þeir sem
gerðu það eru næst heimskastir allra á þessari jörð. Þeir sem taka
toppsætið á þeim lista eru hinn almenni neytandi, það er að segja
þeir sem kaupa þetta. Þetta nammi býður ekki upp á neitt nema
leiðindi og þarf maður að eyða gífurlegu magni af tíma til að éta
þetta. Svo þegar maður er búin með þessa hörðu skel sem er utan
á(ég vil taka það fram að hér er verið að tala um mörg lög sem
maður þarf að brjótast í gegnum) þá býður manns tyggjó inní. Miðað
við alla þá fyrirhöfn og allar þær brotnu tennur sem sem þetta
bastl hefur kostað þá ætti þetta tyggjó að vera eitt það besta í
heimi. Sú er aldeilis ekki raunin. Bragðið endist í um 12.35
sekúndur(misjafnt eftir einstaklingum) sem verður að teljast hreint
hræðilegt og því verð ég að gefa þessu algjöra falleinkunn eða 0 í
Svo vil ég skora á meðeiganda þessarar síðu að drullast til að
hefja skriftir hér á nýjan leik því hann hefur ekki skrifað hér í
Nomís
sem ber nafnið Nomís. Í þessum pistli kemur fram hverskonar leikir
Hugmyndina að þessum leik fékk ég dag einn þegar ég lá í rúminu
mínu og horfði út í loftið. Það varð fljótt leiðinlegt svo ég stóð
upp og tók upp lítinn bláan tappa sem mér fannst vera pepsi tappi.
Svo horfði ég í kringum mig til að leita að ruslinu því að einhver
hefði getað hrasað um þennan tappa og fótbrotið sig og þá hefði ég
fljótt staðið í miklum málaferlum við þann mann. En áður en ég fann
ruslið þá tók ég eftir tveimur orðabókum sem stóðu hlið við hlið
Sumir furða sig kannski afhverju leikurinn heitir Nomís. Hér er
Fyrir þá sem ekki vita hvað Nomís þýðir þá ættuð þið að prófa að
2. Keppendur fá sjö tappa, einn skal vera hvítur en hinir
4. Einungis tveir mega spila í einu og verður sá sem byrjar að
5. Holan á að vera 142 cm. fyrir ofan rúm og rúmið á að vera 42 cm.
6. Nota má hvaða hluti sem er til að búa til holuna en þessir
7. Reyna á að kasta sem flestum töppum í holuna og verða þeir að
8. Halda á áfram að kasta þangað til að allir tappar séu komnir
9. Ef tappi lendir í rúminu má taka hann upp og kasta honum
11. Ef tveir tappar lenda í holunni þá fær maður double NOMÍS. (4
12. Ef allir tapparnir lenda í holunni þá fær maður ULTIMATE NOMÍS,
Úr því að Nomís var svo vinsæll ákvað ég að búa til fjóra Nomís
Ég ákvað að búa til nöfnin á þeim fyrst því að ég var dáldið þurr í
hausnum og hafði ekki mjög mikið ímyndunarafl á þeim tíma. En það
átti eftir að breytast. Ég ákvað að kalla fyrsta leikinn Nomís de
Wilde. Það nafn fann ég upp sjálfur. Reglurnar fyrir þennan leik
1. Reyna á að koma fjórum hálfs líters flöskum ofan í körfu sem á
2. Flöskurnar eiga að standa uppi á 212 cm. til 222 cm. háum stað
4. Keppandinn má reyna að grípa tappann áður en tappinn lendir í
5. Ef keppandinn nær þrem flöskum í körfuna þá fær hann triple
6. Ef keppandinn nær öllum flöskunum í körfuna þá fær hann ULTIMATE
Nomís da Musical var í rauninni annar leikurinn sem ég fann upp. En
af því að ég var búinn að ákveða að leikur númer tvö skildi vera
Nomís de Wilde þá varð þessi leikur að vera númer þrjú. Þessi
leikur er líka dáldið sérstakur því að í þetta skipti bjó ég ekki
til leikinn sjálfur og einnig er þetta eini leikurinn sem ég hef
ekki farið í. Ég fékk aðstoð frá honum Guðmundi Ingva Jónssyni við
gerð þessa leiks. Þessu leikur er hópleikur. Þessi leikur er saminn
3. Keilurnar skulu vera staðsettar inn í teig sem skal eigi vera
7. Takmark leiksins er að skjóta niður keilurnar svo að þær falli
8. Allar handboltareglur gilda í leiknum svo og Nomís da musical
9. Gott getur verið að hlusta á tónlist á meðan leikurinn er
11. Ef menn ná 7 keilum ofan í fá menn triple Nomís eða sem
12. Ef menn ná 7 keilum ofan í fá menn double ultimate Nomís eða 60
Nomís da Malakoff er síðasti Nomís leikurinn sem ég mun gera og
eflaust verður sumum létt en sumir verða sorgmæddir. Reglurnar
fyrir þennan leik bjó ég til leið og ég bjó til þessa leikjabók.
1. Keppandi fær 6 flöskur og á að reyna að hitta þeim ofan í köfu
3. Ef hann hittir tveim flöskum ofan í þá fær hann double Nomís eða
4. Ef hann hittir öllum ofan í þá fær hann big caramba Nomís eða
Hetjuallir
göngunni og voru lítil vandræði á leiðinni. Það réðust svo sem
nokkrir uppvakningar á okkur, fimm stykki hér og þar. Þeir voru
saxaðir jafnt og þétt niður af Friðjóni og atgeirnum hans sem bar
nafnið Gladys. Við vorum búnir að labba svo litla stund þegar við
komum að bílaplaninu við Bónus. Á þessum stað lét Friðjón okkur
vita af áætluninni. Hún var að finna einhvern bíl á planinu með
lyklum í, fylla skottið af mat og keyra síðan á Hvanneyri og hitta
eitthvað folk í Landbúnaðarháskólanum þar. Hvernig hann vissi þetta
veit ég ekki en það hvarlaði ekki að mér efast um gjörðir hans.
Heimir var ekki lengi að finna nothæfan bíl. Þetta var miðlungs
Jeppi. Guðmundur kom með þá tillögu um að leggja bílnum fyrir utan
svo það væri ekki langt að bera. Við tókum allir undir það. En
eitthvað hafði Heimir aðra hugmynd. Hann keyrði bílnum upp á
stéttina og snéri honum við. Því næst setti hann í bakgír, hrópaði
MAIL MOTHERFUCKER og setti jeppan í botn. Þvílík læti sem heyrðust
þegar jeppinn bombaðist inn í Bónus.Aldrei fengum við skýringu á
þessum gjörðum Heimis og fórum við því næst inn í Bónus og tókum
eins mikið af mat og við gátum. Við fylltum jeppan og settumst inn.
Þegar við keyrðum út blasti þetta við okkur. Það hlaut að vera
minnst 150 uppvakningar vafrandi um fyrir utan. Allt í einu kom
mikill brjálæðis svipur á andlits Guðmunds sem sat undir stýri.
ALLIR INN öskraði hann af mikilli karlmennsku. Því næst var jeppinn
settur í botn og brunað í gegnum hrúguna. Blóð úr þessum úrþvættum
slettist út um allt. Fátt hafði ég séð sem var ógeðslegra en þetta.
Þegar við vorum komin út úr þvögunni beygði Guðmundur til hægri og
stefnan var sett á Hvanneyri. Þegar við nálguðumst Fellabæ tókum
við eftir því að jeppinn var orðinn fremur bensín lítill. Við
þurfum því að gera stutt stopp í Olís þar í bæ. Guðmundur stoppaði
bílinn við dælu fimm og byrjaði að dæla. Bessi setist við stýrið ef
við mundum þurfa að fara snögglega. Ég, Friðjón, Guðmundur og
Heimir stóðum vörð. Ég með trjádrumbinn, Friðjón með Gladys,
Guðmundur með sverðið ógurlega og Heimir með einhverja járnkylfu
sem hann hafði fundið. Við höfðum varla verið stopp nema í um sjö
búinn að dæla svo við þurftum að halda þeim frá í svolitla stund.
Samstundis stökk Friðjón út á móti þeim með atgeirinn og sveiflaði
honum gífurlega. Þegar við sáum þetta fylltumst við allir hugrekki
og stukkum út honum til hjálpar. Friðjón hjó höfuðið af einum og
annan hjó hann bókstaflega í tvennt. Guðmundur var engu síðri og
hjó höfðu, handleggi og fótleggi af mörgum. Ef maður hlustaði vel á
hann þá mátti heyra lágt en enga síður mjög dýrslegt urr í honum.
Ég og Heimir stóðum hlið við hlið og smelltum kylfum okkar í andlit
þeirra af einstakri siðprýði, ekki eins villimannslega og hinir
tveir sem hjóu hendur og fætur af eins og þeim væri borgað fyrir
það. Svo kom kallið. ALLIR INN. GO GO GO GO. Bessi hélt greinilega
að hann væri staddur í einhverji asnalegri bíómynd um
Víetnamstríðið. En inn forum við og brunuðum burt. Hvort við
HetjuFriðjón
föruneyti hafði ekki hlaupið langt þegar þeir voru komnir í bobba
aftur. Þeir voru staddir fyrir utan kirkjuna á Egilsstöðum og höfðu
tekið sér smá hvíld. Eins og fyrr kom fram stóð hún ekki lengi. 30
uppvakningar birtust úr engu. Guðmundur reyndi sveiflaði eins og
hann gat og stax féllu tveir. Ég tók upp einhvern trjádrumb sem
legið hafði í moldinni og smellti í andlitin á þessum ófétum hægri
vinstri. Blóðsletturnar flugu út um allt. En þeir voru of margir.
Fjórir þeirra höfðu umkring veslings Hákon og kjömsuðu mikið á
honum. Ferð hans í þessari sögu var lokið og allt virtist stefna í
sömu örlög fyrir okkur hina. EN allt kom fyrir ekki. Inn í hópinn
stökk vera. Í fyrstu hélt ég að um einhverja akurhænu væri að ræða
en svo var ekki. Þetta var enginn annar en Friðjón Magnússon. Inn á
milli þessara svakalegu skrímsla stóð hann, aðeins hann og
atgeirinn. Uppvakningarnir hópuðust að honum og þá fóru fyrst
hausar að fjúka. Það tók hann ekki nema mínútu eða svo að drepa
allan ófénaðinn. Og ekki var það það furðulegasta, nei. Það
furðulegasta var það að það var ekki blóðdropi á
      Gummi höfðum báðir tekið fjóra og Heimir og Bessi sinn hvorn,
      og við vorum allir holvotir. Friðjón tók í kringum tuttugu og
      sást ekki á honum. Það var greinilegt að hér var fagmaður á
      ferðinni. Hann tók strax stjórnina og sagði okkur að halda
      upp í kirkjuturninn til að gera nætursetu, því ekki var óhætt
      að ferðast að nóttu til. Enginn okkar gat sofið þessa nótt.
      Allstaðar heyrðust öskur, bæði af hræðslu og þjáningu. Enginn
morgunn lögðum við af stað. Við vissum ekkert hvað við áttum að
gera að það var fullljóst að Friðjón var með það á hreinu. Bessi
spurði hann hvert við vorum að fara. Það sem hann fékk til baka var
einfalt. GRÓTHALTU KJAFTI EF ÞÚ VILT LIFA. ÞÚ KEMST AÐ ÞVÍ ÞEGAR
Hetjugummi
<description>Hér eftirfarandi kemur saga. Hún er ekki sönn. Þetta er einungis
byggt á draumförum mínum í gærnótt þar sem margir af nemendum ME
komu fyrir. Þetta er aðeins fyrri hluti og kemur seinni einhvern
tíman seinna ef ég nenni. Úti var kalt og drungalegt. Mikið hafði
fennt nóttina áður og var því nokkuð kaf úti fyrir. Ég og Guðmundur
vorum að búast til að hafa nætursetu inni í herberginu okkar þegar
þrír menn komu inn. Þetta vakti mikla furðu okkar Guðmunds þar sem
klukkan var að nálgast þrjú. Við þekktum þessa menn ekki því þetta
voru busar sem við höfðum aldrei séð áður.. Ég tók strax eftir að
þeir voru eitthvað furðulegir útlits. Þegar þeir löbbuðu inní
ljósið tók ég eftir því, þeir voru allir blóðugir í framan og
reyndar blóðugir úti um allt. Þá áttuðum við Gummi okkur á því,
þeir voru uppvakningar. Ég brást harkalega við þessu og kastaði
öllu lauslegu að þeim. En þetta stöðvaði þá ekki, hægði aðeins á
þeim ef segja má. Rétt eftir þetta þegar allt virtist búið heyrði
ég ógnvægilegasta öskur sem ég hafði nokkurn tíman heyrt. Það kom
fyrir aftan mig. Þetta var enginn annar en Guðmundur Jónsson
sjálfur sem hafði tekið sverðið sem hann fékk fyrir að stýra 300
ganginum til sigurs á einhverju gangamótinu. Hann stökk heljarstökk
yfir mig og uppvakningana og lenti úti á gangi. Þar sveiflaði hann
tvisvar sinnum og þrír hausar féllu. Hann hafði bjargað lífi mínu.
Eftir þetta hljópum við niður stiganna og niður í anddyri þar sem
við sáum Hákon, Heimi og Bessa. Þeir hrjúfruðu um sig í einu
horninu við skóhillurnar, skelfingu lostnir þar sem fimm
uppvakningabusar bjuggust undir átu. En þeir átu aldrei framar þvi
aftur var sverði sveiflað og nú fuku ekki bara hausar, heldur allt
saman. Hendur, fætur, fingur, tennur. Allt flaug þetta út um allt
og varð maður að passa sig að fá þetta ekki í sig. Þegar yfir stóð
var ekkert eftir að uppvakningunum. Guðmundur hafði gert þetta
aftur. Þetta fimm manna föruneyti, búið til úr Reyðfirðingum og
Seyðfirðingum hélt því af stað út í óvissuna. Við vorum ekki fyrr
lagðir af stað þegar allt í einu réðust fimm uppvakningar á okkur.
Og núna voru þetta ekki einungis busar. Í þessum hópi var góðvinur
okkar hann Ívar Pétur. Enn einu sinni var sverði sveiflað. Tveir
uppvakningar féllu strax. En útúr kennsluhúsinu streymdu
uppvakningar svo tugum skiptu. Mikil hetja var Guðmundur en hann
var enginn Jean-Claude Van Damme. Hann sveiflaði eins og hann gat
og flugu margir hausar. En hann réð ekkert við þennan fjölda. Þegar
hann var að búa sig undir undanhald sá ég að Ívar Pétur hafði
laumast aftan að honum og var að gera sig líklegan til bítinga. Þá
tók ég upp spjót sem lá í runnanum (ekki hugmynd hvernig það komst
þangað) og negldi því í hann. Mér hafði hvort eð er aldrei líkað
við hann. Ívar greyið skaust framhjá Guðmundi og inn í hópinn. Þá
kom mikið hik á þennan uppvakninga hóp og var það greinilegt að
Ívar Pétur var hátt settur meðal uppvakninga. Guðmundur stoppaði og
sagði: You, you. You´ve got a fucking gift man. Síðan hljópum við
Framhald næst. Ps. Ívar, ef þú lest þetta þá meina ég ekkert með
þessu. Þetta voru alfarið draumfarir og á engan hátt vil ég þér
mér þá kemur ný sending á mánudaginn í herbergi 222.
Gummi er í sturtu og er hótandi öllum
<description>Já það er komið á hreint, Gummi er í sturtu og lætur illum látum.
Hann spyr hvað hann eigi að gera við þetta skegg sitt. Mér er
drullusama svo sem. Hvenær fær maður frið hérna spyr hann aftur.
Það veit ég ekki segi ég til baka. Svo bullar hann eitthvað meir og
ég fæ nóg og geng út. Ótrúlegur maður, ef mann má kalla. Ef þið
mynduð sjá það sem ég sé núna myndi ykkur blöskra og vera
En þetta er ótrúlegt. Núna eru tveir fucking naktir menn inni í
mínu herbergi. Þetta er hrottalegt. Árni Geir segir: Guðmundur er
ekki ógeðslegur og styður Guðmundur það. En mér blöskrar bara. Hann
stelur skónum mínum eftir að hafa flætt allt helvítis herbergið.
En aðalatriði þessa pósts er það að ég hef verið fucking klukkaður
4 Störf sem ég hef unnið um ævina: Sundlaugarvörður, sjoppukall,
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur: Sin City, Lord of
4 staðir sem ég hef búið á: Reykjavík, Seyðisfjörður, heimavistin
4 staðir sem ég hef farið á í fríi: Danmörk, Portúgal, London og
4 sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi: Prison Break, Lost, 24 og
4 síður sem ég heimsækji daglega: Einkabanki, atvr, fotbolti.net og
4 máltíðir sem ég held upp á: Engin ástæða til að nefna aðeins
fjórar. Látum okkur nú sjá, morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur,
laugardagsmatur hjá afa, Pizzumáltíðin heima á föstudögum,
páskamaturinn, jólamaturinn, allar afmælismáltíðir,
Sunnudagsmáltíðar, mánudagsmáltíðar, þriðjudagsmáltíðar,
miðvikudagsmáltíðar, fimmtudagsmáltíðar, föstudagsmáltíðar,
4 bækur sem ég les oft: Les ekki bækur, of upptekin við að borða og
4 staðir sem ég vildi vera á núna: Krít, Pizza Hut, Andreas og á
Ég klukka engan því þetta er hrottaleg aðferð við að kreista
lífviljann úr mönnum. Bíddu aðeins, ég klukka Gumma Jóns og mér er
Ok þá er allt komið. Þetta hefur verið hræðilegt og biðst ég vægðar
því ég vil aldrei vera klukkaður aftur og sá sem það mun gera mun
hljóta pyntingar of a lifetime.
Sundskrímslið ógurlega
<description>Lífið hefur leikið við mig undanfarið. Ekki mikið af ótrúlegum
hamförum á síðustu dögum, endurnar í herberginu okkar Gumma eru
loksins farnar og fyrirtækið mitt í Venusavela blómstrar. En ég er
ekki lengi í paradís, það er á hreinu. Sigurganga mín í lífinu er á
undanhaldi og hafa hrakfarirnar tekið við aftur. Þetta veit ég því
það var gerð atlaga á líf mitt í sundi nú fyrr í dag. Og ekki bara
einu sinni, heldur 17 sinnum. Fyrstu 15 skiptin sá ég aldrei hver
var þar að verki. Aldrei heyrðist hljóð, engar öldur. Það var
næstum eins og ég væri þarna einn í vatninu. En svo var ekki. Í
þessi 15 skipti barðist ég fyrir lífi mínu þegar ég var annað hvort
dregin niður í hyldýpið eða fleygt himinhátt í loftið þar sem ég
þessu hræðilega skrímsli. Ég náði einum af gripörmum hans og
ófreskjan byrjaði sprikla. En ég sleppti aldrei og að lokum birtist
mér andlit. Mér blöskraði og ældi af hryllingi. Þetta var enginn
annar en maðurinn sem hefur allt sitt líf reynt að gera útaf við
mig. Þetta var Guðmundur Jónsson. Ég spurði hvern djöfulinn hann
var að gera og hann svaraði: ekkert, og sló mig utan undir, svo
fast að ég missti takið á gripörmum hans og einnig meðvitund. Þegar
ég rankaði við mér var hann hvergi að sjá þannig að ég hélt áfram
að synda. Svo kom að því að hann krækti í mig aftur og sagði: förum
upp úr og það gerðum við. Seinna fórum við á pizzuhlaðborð þar sem
hann viðurkenndi að honum þætti gott að fá sér sultu á
pizzusneiðina. Mér blöskraði og ældi af hryllingi og var
Þið hafið verið að lesa verk eftir Böðvar Pétursson. Styttur af
Desert Smeagol
<description>Aðvörun: atriði í þessum pistli eru sannsöguleg. aðeins hefur
nöfnum, atburðum og ýmsum öðrum staðreyndum verið breytt. Einnig
eru sum atriði þessa pistils ekki við hæfi dýraverndunarsinna. Það
var mánudaginn 31. ágúst árið 2001 sem Lardo Williams Quarterback
Tampa Bay Buccanneers óð af stað út í eyðimörkina, hann notaði hest
sinn Snotran Forrester til farar, en hitinn var óbærilegur. 25
gráður eru alltof mikið fyrir mann eins og Lardo og hann er ekki
þekktur fyrir að fara út um dyr þegar svona óveður skellur á. Til
að áætlunarverkið tækist, ákvað samstarfsaðili Lardos, að fylgja
honum í leiðangurinn sem hefði getað reynst feigðarför.
Samstarfsaðili Lardos fleygði sér á hestinn og förin hófst, ekkert
mátti ranglega fara, engan tíma mátti missa. Til að þessi ferð
tækist þurfti einkar snilldarlega áætlun og forgangsröðun varð að
vera gallalaus. Því ákvað föruneytið að byrja á því að stoppa sem
næst byrjunarreit og enda á staðnum sem var næstur endareit. Fyrsta
stopp var í mjólkurbúðinni, en mjólk er uppistaða lífs og því var
mjólkin eitt það mikilvægasta sem föruneytið þurfti að næla sér í.
Þessi áætlun var vel heppnuð, á mettíma var alls kyns mjólk keypt
og föruneytið hélt því ótrautt til næsta verkefnis. Lardo fór
vitanlega fyrir förinni og var við stjórnvölinn á Snotrum
Forrester. Snotur spretti úr spori og áður en ónefndur
samstarfsaðili hans vissi af hafði Snotur staðnæmst og við blasti
feiknarstórt gil. "Matur" sagði Lardo, og Snotur Forrester sleikti
út um. Lardo teygði sig og tók upp 3 stykki slípaðar steinvölur.
Hann beygði sig niður og starði ofan í sandinn. Eftir dágóða stund
lokaði hann augunum. Samstarfsaðilinn horfði einbeittur á og sá
Lardo lygna upp augunum, og honum sýndist hann sjá glott við tönn.
Lardo horfði upp í gilið og tók snögga hreyfingu, svo snögglega
hreyfði hann sig að ónefndur samstarfsaðili vissi ekki fyrr en fugl
féll í sandinn við tær hans. Þetta var Smyrill. Lardo tók Smyrilinn
upp, og sagði "af stað". Þeir óðu áfram í sandstorminum og nú var
hitinn meiri háttar, Lardo kolsvitnaði og lét Snotur auka hraðann.
Þeir komu loks á áfangastað, og afrakstri ferðarinnar var komið
fyrir. Mjólk var drukkinn, Smyrill var eldaður og sögur flugu. Ég
vil benda á að með þessari sögu vil ég gera allt annað en að móðga
nokkurn, því þó þessi saga sé byggð á sannsögulegum persónum og
atburðum, og nöfn persónanna í sögunni tengjast persónunum sem þau
eru byggð á ekki á nokkurn hátt. takk fyrir