Rauða Þruman og man of the minute
30.08.2007 13:58:24 / Gummi

Hilsen fra Krabbesholm, Skive, Denmark!

Jæja, ætli sé ekki best að láta vita af sér hérna. Ég er semsagt staddur í Danmörku í lýðháskóla sem heitir Krabbesholm og er einn virtari lýðháskólinn í Dk.
Hér er ég að læra ljósmyndun aðallega en einnig ýmislegt annað, svo dæmi sé tekið er þessi vika svokölluð verkstædsuge þar sem allir velja sér eitthvað annað. Ég er að mála. Jebb, ég sagði það, MÁLA.
Ekkert venjulegt samt, fyrsta verkefnið var þannig að við stóðum 5 metra frá verkinu og áttum að mála, svo áttum við að mála landslag, í gær áttum við svo að mála eins ljóta mynd af ljótum hlut og við gætum og síðar var bíttað á myndum og við áttum að gera mynd næsta manns fallega. Í dag áttum við svo að velja verk einhvers listamanns og mála það.
Ég valdi Stórval að sjálfsögðu, það gekk bara vel.

Myndir af þessum einkar glæsilegu verkum má finna á flickr síðu minni auk fleiri mynda frá Krabbesholm.

Nú, hér í Krabbesholm er mikið félagslíf. Bjór er oft hafður með í för þegar fólkið hittist á kvöldin en yfirleitt eru menn nú ekki kenndir nema örfá kvöld í viku.

Í september förum við svo til Þýskalands í námsferð og verður það án vafa mikil snilld. Einnig stefni ég á amk eina ferð til Sönderborgar í heimsókn til Beggu frænku og fjölskyldu auk þess sem maður kemur til með að kíkja til Köben og Århus oftar en einu sinni.

En ég kveð í bili, RedThunder er vöknuð!


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 21:32:16 / rauda

Útskrift=gott. GIN og Tonic=Magnað gott

Útskriftarfögnuður Böðvars og Ívars Péturs verður haldinn annað kvöld, eða laugardaginn 20 maí í Herðubreið í hinum fagra Seyðisfirði. Frítt er inn og mega þeir sem skilaboð fengu koma og einnig þeir sem telja sig eiga skilið að koma. Enginn bar verður á staðnum og verða menn því að sjá um sín vökvamál sjálfir. Einnig verður hart barist um DJ dæmið en heyrst hefur að um fimm manns ætli sér að sjá um það og forvitnilegt verður að fylgjast með hver verður lengst. Meðal DJ-a verða meðal annars hinn víðsfrægi DJ stóðhestur og DJ GASOLIN. Einnig hefur heyrst að DJ MAXWELL ætli að mæta en það verður bara að koma í ljós. Hæfilegt er að menn komi um svona 11- 12 leitið en ég býst við því að það hafi staðið í skilaboðunum. Takk fyrir.

» 12 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 23:40:00 / Gummi

Fuck Roskilde!

já, ég sagði það.. mig langar að sjálfsögðu aftur þangað, en mig langar eiginlega meira á tvær aðrar hátíðir:
Lollapalooza - http://www.lollapalooza.com./default.asp?fd=1 í Chicago í ágúst annars vegar,
og Bonnaroo - http://www.bonnaroo.com/2006/ í Manchester í Tennessee í júní hins vegar. Spurning um að fara bara út, leigja húsbíl og vera í USA í rúmlega 2 mánuði :P

og fara svo með friðbergi nokkrum hreggviðs og garðari bachmann í svæsna för til Venezúela.. mér líst bara nokkuð vel á þetta plan..
eitthvert sumarið.. eitthvert sumarið :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2006 23:15:29 / Gummi

Ný skoðanakönnun

Síðasta skoðanakönnun var samin í flýti og sökum hugmyndaleysis varð hún óspennandi en ný könnun verður sett inn hið fyrsta.
Hér eru annars niðurstöður úr síðustu könnun sem eru vægast sagt sláandi:



71% lesenda eru fífl, en 14% eru hornrassar. Enginn lesandi var geldingur en óhugnanlegt er að 7 % þeirra eru dauðir. Forvitnilegast er að 7 % lesenda þessarar síðu eru samkynhneigðir.


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 21:00:01 / rauda

Besti markmaðurinn

Einn leikmaður hins nýja en gífurlega efnilega knattspyrnufélags 06. Apríls kom til sögu á stórmóti um helgina. Sá maður er hinn ævintýralegi Böðvar Pétursson. Stórmótið var fjölskyldumót Hugins. Böðvar, sem upphaflega leikur sem miðjumaður eða kantmaður var öllum að óvörum látin leika sem markmaður en eins og sumir vita er Böðvar einnig þriðji markvörður 06. Apríls á eftir aðalmarkverðinum Ívari Pétri Kjartansyni sem lék á yngri árum með barna og unglingadeild hins Belgíska félags K Racing Club Genk, betur þekkt sem bara Genk. Hann þótti gríðarlega efnilegur en þessi drengur, sem þá var aðeins níu ára gutti, heimtaði gífurlega há laun sem Genk gat alls ekki greitt honum og var því sendur aftur heim á klakann þar sem hann datt í flöskuna. Margir íþróttaspekingar telja þetta tækifæri sem hann fær með 06. Apríl vera það síðasta sem Ívar á eftir að fá í knattspyrnuheiminum og vona að þessi áður bjartasta stjarna Íslands eigi eftir að blómstra þar. Markamaður númer tvö hjá 06. Apríl er hinn liðugi og kattsnöggi Friðjón Magnússon sem tekið hefur upp skóna að nýju eftir tveggja ára fjarveru. Þó svo að Friðjón hafi ekki komist á reynslu hjá erlendu félagi fyrir átta ára aldurinn eins og Ívar, þá bætir hann upp fyrir það með því að hann komst á reynslu hjá erlendu félagi fyrir ellefu ára aldurinn. Það félag var hið Skoska Queens of the South. Það gekk ekki vel því eftir aðeins þriggja mánaða dvöl hjá liðinu lenti hann upp á kant við formann félagsins og var rekin frá félaginu. Hann endaði einnig í flöskunni. En aftur að mótinu. Böðvar sýndi gífurlega takta og maður verður að spyrja sig afhverju hið ítalska félag Messina lét hann fara frá sér þegar hann var þar á reynslu aðeins fimm ára að aldri. Hann lét það sér alls ekki nægja og setti tvö mörk fyrir liðið sitt. Þó svo að Böðvar hafi verið valinn besti markmaðurinn á mótinu, voru fleiri í liðinu sem létu til sín taka. Í þeim hópi voru Márus sem endaði sem markahæsti maður liðsins, varnarjaxlarnir þær Kolbrún og Eva, Jóna sem var gífurlega skæð að vanda og hinn knái og gífurlega efnilegi Daníel sem átti góða spretti og var gífurlega baráttuglaður. En þrátt fyrir góða spretti í markinu í gegnum allt mótið þoldi Böðvar ekki pressuna í úrslitaleiknum sem fór í golden goal framlengingu og missti boltan klaufalega framhjá sér. Eftir þetta datt hann í flöskuna og eru björgunarmenn að undirbúa aðgerð til að ná honum upp.

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 23:00:36 / rauda

Opinber afsökunarbeiðni

Mér hefur verið veitt athygli á því að síðasta laugardagskvöld hafi ég ekki hagað mér eins og herramanni sæmir og biðst ég afsökunar á því. Mér hefur verið sagt að ég hafi slegið vini mína utan undir þar sem þeir sátu við borð og gerðu ekkert á minn hlut. Svona hegðun er að sjálfsögðu óásættanleg og heiti ég því að hart verður tekið á þessu máli. Einnig vil ég biðjast afsökunar á því að hafa hrætt Hjalta Jón með ósæmilegum köllum í hans garð. Bergþór varð líka fyrir barðinu á þessum köllum en ég vil ekkert biðja hann afsökunar því hann fór snemma heim eins og alltaf og átti því bara þetta skilið. Svo frétti ég líka af því að ég hefði hringt í hann Heimi félaga minn og átt einhver orðaskipti við hann og ef þau voru eitthvað ósæmileg biðst ég einnig afsökunar á því.
Nú tel ég að þessari afsökunarbeiðni sé lokið og ætla ég að fara að gera eitthvað sniðugt í staðinn.

Böddi

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 22:12:20 / rauda

6.apríl - Óli

Hér eftir verður haldið hátíðlega upp á apríl. En ég fer frekar í það því fyrst koma reglur Óla-leiksins góða.

Óli var fundinn upp þegar ég var á mínu öðru ári í ME. Þessi leikur var stundaður á 200 gangi neðri heimavistarinnar en hann er mjög einfaldur og því er engin afsökun fyrir því að geta ekki stundað hann.
"Það eina sem þú þarft er 10kall." -S. Jónass. haust ´04.
Ég man nú ekki nákvæmlega hverjir voru eiginlegir stofnendur leiksins en Böðvar og Sveinbjörn eru líklegir kandídatar. Þáttakandi sem kastar skal standa á öðrum enda gangsins með 1 tíkall við hönd. Markmiðið er að láta 10 kallinn komast sem lengst en þó verður hann að fara í gólfið innan við hálfum meter frá þeim stað sem kastað er frá. Honum má semsagt ekki kasta heldur verður hann að rúlla. Stig eru gefin fyrir lengd og hentugast þykir að láta tíkallinn ekki snerta veggi gangsins, enda þykir það draga úr árangri. Ef tíkallinn komst út allan ganginn fékkst Óli. Ef hann fór fram hjá lyftunni og upp þröskuldinn fékkst Óli Péturs/Sílikon. Ef tíkallinn endaði svo undir sófanum frammi á sal fékkst Óli Mundu. Fleiri stigagjafir voru og voru þær allar kenndar við einhvern Óla en ég man ekki frekari skilgreingu á þeim. Þátttakendafjöldi er ótakmarkaður, svo lengi sem þeir eru ekki fyrir þeim sem kastar.
Stundun leiksins hefur leitt í ljós að 1986-árgangur 10kalla framkallaði betri árangur en t.d. ´94 og ´97 árgangar tíkallanna, enda ríkir augljóslega í þeim mikil reynsla. Því miður er fátt um þessi eintök svo best er að halda þessum eintökum tíkalla ef þú skyldir ramba á eitt slíkt.

En víkjum að 06.apríl, sem hér eftir verður hátíðisdagur. Í kvöld klukkan 20.00 var stofnfundur nýs knattspyrnufélags settur í herbergi 310 á heimavist ME. Þar voru mættir reyðfirðingar, seyðfirðingar, eskfirðingar, fáskrúðsfirðingur og breiðdælingur. Þeir höfðu það allir sameiginlegt að hafa áhuga á að spila fótbolta í góðum félagsskap og höfðu sameinast í þeirri ákvörðun að setja á stofn nýtt félag og skrá það í utandeildarkeppni. Félagið mun ganga undir nafninu 6.apríl, Apríl 06, 06 Apríl eða einfaldlega Apríl.
Rætt var um ýmis málefni og mun það koma fram seinna á bloggsíðu liðsins, sem unnið er að þessa dagana.
Liðsmenn voru afar samheldnir þar sem boðið var upp á veitingar og fögnuðu menn ákaft við stofnsetningu þessa klúbbs sem á vafalaust eftir að setja svip sinn á Malarvinnslubikarinn.

Guðmundur biður að heilsa.


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 16:00:22 / rauda

Asnalegt nammi

Um daginn eða réttara á mánudaginn síðasta komst ég loksins að niðurstöðu við mikilvægustu spurningu okkar tíma, hvað er leiðinlegasta nammið. Það var eiginlega aldrei nein spurning um hvaða nammi mundi hljóta þennan titil. Jawbreaker eða kjálkabrjótur er án efa eitt það allra leiðinlegasta nammi sem sögur fara af og er það mikil furða að þetta skuli hafa verið búið til og þeir sem gerðu það eru næst heimskastir allra á þessari jörð. Þeir sem taka toppsætið á þeim lista eru hinn almenni neytandi, það er að segja þeir sem kaupa þetta. Þetta nammi býður ekki upp á neitt nema leiðindi og þarf maður að eyða gífurlegu magni af tíma til að éta þetta. Svo þegar maður er búin með þessa hörðu skel sem er utan á(ég vil taka það fram að hér er verið að tala um mörg lög sem maður þarf að brjótast í gegnum) þá býður manns tyggjó inní. Miðað við alla þá fyrirhöfn og allar þær brotnu tennur sem sem þetta bastl hefur kostað þá ætti þetta tyggjó að vera eitt það besta í heimi. Sú er aldeilis ekki raunin. Bragðið endist í um 12.35 sekúndur(misjafnt eftir einstaklingum) sem verður að teljast hreint hræðilegt og því verð ég að gefa þessu algjöra falleinkunn eða 0 í einkunn. Fáið ykkur extra tyggjó í staðinn. Miklu meira gagn.
Svo vil ég skora á meðeiganda þessarar síðu að drullast til að hefja skriftir hér á nýjan leik því hann hefur ekki skrifað hér í síðustu sjö færslum.
Böddi

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 14:06:42 / rauda

Nomís

Hver man ekki eftir þessum gífurlega skemmtilega og vinsæla leik sem ber nafnið Nomís. Í þessum pistli kemur fram hverskonar leikir þetta eru og hvernig á að spila þá.

Nomís, the beginning
Hugmyndina að þessum leik fékk ég dag einn þegar ég lá í rúminu mínu og horfði út í loftið. Það varð fljótt leiðinlegt svo ég stóð upp og tók upp lítinn bláan tappa sem mér fannst vera pepsi tappi. Svo horfði ég í kringum mig til að leita að ruslinu því að einhver hefði getað hrasað um þennan tappa og fótbrotið sig og þá hefði ég fljótt staðið í miklum málaferlum við þann mann. En áður en ég fann ruslið þá tók ég eftir tveimur orðabókum sem stóðu hlið við hlið uppi á hillu og ég ákvað að reyna að hitta á milli.
Og BINGÓ. Nomís varð til.
Sumir furða sig kannski afhverju leikurinn heitir Nomís. Hér er svarið.
Ég fann ekki upp á nafninu Nomís heldur var það hún Sandra Rut.
Fyrir þá sem ekki vita hvað Nomís þýðir þá ættuð þið að prófa að lesa það aftur á bak. Þá fáið þið út nafnið Símon.

Allar kvartanir skulu beinast til Söndru Rutar en ekki Böðvars.

Leikreglur fyrir NOMÍS
1. Keppendur skulu vera í tveggja og hálfsmetra fjarlægð.
2. Keppendur fá sjö tappa, einn skal vera hvítur en hinir bláir.
3. Holan á að vera 7 cm. á breidd en 6-12 cm. á hæð
4. Einungis tveir mega spila í einu og verður sá sem byrjar að klára að kasta sínum töppum áður en næsti má gera
5. Holan á að vera 142 cm. fyrir ofan rúm og rúmið á að vera 42 cm. á lengd.
6. Nota má hvaða hluti sem er til að búa til holuna en þessir hlutir mega helst ekki vera fleiri en þrír.
7. Reyna á að kasta sem flestum töppum í holuna og verða þeir að stoppa í henni.
8. Halda á áfram að kasta þangað til að allir tappar séu komnir niður á golf eða í holuna.
9. Ef tappi lendir í rúminu má taka hann upp og kasta honum aftur.
10. Ef hvíti tappinn lendir í holunni þá fær maður tvö stig.
11. Ef tveir tappar lenda í holunni þá fær maður double NOMÍS. (4 stig)
12. Ef allir tapparnir lenda í holunni þá fær maður ULTIMATE NOMÍS, sem eru 50 stig.

Nomís de Wilde. Half way to the end.
Úr því að Nomís var svo vinsæll ákvað ég að búa til fjóra Nomís leiki.
Ég ákvað að búa til nöfnin á þeim fyrst því að ég var dáldið þurr í hausnum og hafði ekki mjög mikið ímyndunarafl á þeim tíma. En það átti eftir að breytast. Ég ákvað að kalla fyrsta leikinn Nomís de Wilde. Það nafn fann ég upp sjálfur. Reglurnar fyrir þennan leik bjó ég til næstum því um leið og ég bjó til þessa leikjabók.

Leikreglur fyrir Nomís de Wilde.
1. Reyna á að koma fjórum hálfs líters flöskum ofan í körfu sem á að vera ein áln í þvermál.
2. Flöskurnar eiga að standa uppi á 212 cm. til 222 cm. háum stað og á keppandinn að standa í tveggja og hálfs metra fjarðlægð.
3. Keppandinn fær sex tappa til að kasta í flöskurnar.
4. Keppandinn má reyna að grípa tappann áður en tappinn lendir í gólfinu og ef það tekst má hann nota tappann aftur.
5. Ef keppandinn nær þrem flöskum í körfuna þá fær hann triple Nomís eða níu stig.
6. Ef keppandinn nær öllum flöskunum í körfuna þá fær hann ULTIMATE Nomís eða 80 stig.

Nomís da Musical
Almost at the
end of our journey

Nomís da Musical var í rauninni annar leikurinn sem ég fann upp. En af því að ég var búinn að ákveða að leikur númer tvö skildi vera Nomís de Wilde þá varð þessi leikur að vera númer þrjú. Þessi leikur er líka dáldið sérstakur því að í þetta skipti bjó ég ekki til leikinn sjálfur og einnig er þetta eini leikurinn sem ég hef ekki farið í. Ég fékk aðstoð frá honum Guðmundi Ingva Jónssyni við gerð þessa leiks. Þessu leikur er hópleikur. Þessi leikur er saminn í minningu Símons Ólafssonar.

Leikreglur fyrir Nomis da Musical
1. 2 lið og 3 í hverju liði.
2. 7 keilur skulu vera á háum stalli sem er 1,5 m – 4,0 m á hæð
3. Keilurnar skulu vera staðsettar inn í teig sem skal eigi vera lengri en 3 m á lengd og breidd.
4. Nota skal bolta til skjóta á keilurnar.
5. Bannað er að skjóta á keilurnar inn í teignum.
6. Dómarinn er alvaldur, það sem hann segir er rétt.
7. Takmark leiksins er að skjóta niður keilurnar svo að þær falli ofan í körfu sem á að vera ein áln í þvermál.
8. Allar handboltareglur gilda í leiknum svo og Nomís da musical reglurnar.
9. Gott getur verið að hlusta á tónlist á meðan leikurinn er spilaður.
10. Leiktíminn er 15 mínútur og eru þeir fimm talsins.
11. Ef menn ná 7 keilum ofan í fá menn triple Nomís eða sem samsvarar 9 stigum.
12. Ef menn ná 7 keilum ofan í fá menn double ultimate Nomís eða 60 stig.

Nomís da Malakoff.
The final game.
Nomís da Malakoff er síðasti Nomís leikurinn sem ég mun gera og eflaust verður sumum létt en sumir verða sorgmæddir. Reglurnar fyrir þennan leik bjó ég til leið og ég bjó til þessa leikjabók. Þetta er eini leikurinn sem notast er við flöskur sem skotfæri.

Leikreglur fyrir Nomís da Malakoff.
1. Keppandi fær 6 flöskur og á að reyna að hitta þeim ofan í köfu sem á að vera ein áln í þvermál
2. Keppandi á að standa í tveggja og hálfs meters fjarlægð .
3. Ef hann hittir tveim flöskum ofan í þá fær hann double Nomís eða 4 stig.
4. Ef hann hittir öllum ofan í þá fær hann big caramba Nomís eða 298 stig.
5. Þetta er tveggja manna leikur.

Böddi


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 13:27:35 / rauda

Hetjuallir

Hér kemur loka kafli sögunnar.

Við héldum áfram göngunni og voru lítil vandræði á leiðinni. Það réðust svo sem nokkrir uppvakningar á okkur, fimm stykki hér og þar. Þeir voru saxaðir jafnt og þétt niður af Friðjóni og atgeirnum hans sem bar nafnið Gladys. Við vorum búnir að labba svo litla stund þegar við komum að bílaplaninu við Bónus. Á þessum stað lét Friðjón okkur vita af áætluninni. Hún var að finna einhvern bíl á planinu með lyklum í, fylla skottið af mat og keyra síðan á Hvanneyri og hitta eitthvað folk í Landbúnaðarháskólanum þar. Hvernig hann vissi þetta veit ég ekki en það hvarlaði ekki að mér efast um gjörðir hans. Heimir var ekki lengi að finna nothæfan bíl. Þetta var miðlungs Jeppi. Guðmundur kom með þá tillögu um að leggja bílnum fyrir utan svo það væri ekki langt að bera. Við tókum allir undir það. En eitthvað hafði Heimir aðra hugmynd. Hann keyrði bílnum upp á stéttina og snéri honum við. Því næst setti hann í bakgír, hrópaði MAIL MOTHERFUCKER og setti jeppan í botn. Þvílík læti sem heyrðust þegar jeppinn bombaðist inn í Bónus.Aldrei fengum við skýringu á þessum gjörðum Heimis og fórum við því næst inn í Bónus og tókum eins mikið af mat og við gátum. Við fylltum jeppan og settumst inn. Þegar við keyrðum út blasti þetta við okkur. Það hlaut að vera minnst 150 uppvakningar vafrandi um fyrir utan. Allt í einu kom mikill brjálæðis svipur á andlits Guðmunds sem sat undir stýri. ALLIR INN öskraði hann af mikilli karlmennsku. Því næst var jeppinn settur í botn og brunað í gegnum hrúguna. Blóð úr þessum úrþvættum slettist út um allt. Fátt hafði ég séð sem var ógeðslegra en þetta. Þegar við vorum komin út úr þvögunni beygði Guðmundur til hægri og stefnan var sett á Hvanneyri. Þegar við nálguðumst Fellabæ tókum við eftir því að jeppinn var orðinn fremur bensín lítill. Við þurfum því að gera stutt stopp í Olís þar í bæ. Guðmundur stoppaði bílinn við dælu fimm og byrjaði að dæla. Bessi setist við stýrið ef við mundum þurfa að fara snögglega. Ég, Friðjón, Guðmundur og Heimir stóðum vörð. Ég með trjádrumbinn, Friðjón með Gladys, Guðmundur með sverðið ógurlega og Heimir með einhverja járnkylfu sem hann hafði fundið. Við höfðum varla verið stopp nema í um sjö sekúndur þegar þetta skall á. Um 70 uppvakningar  réðust að okkur. Bessi var ekki búinn að dæla svo við þurftum að halda þeim frá í svolitla stund. Samstundis stökk Friðjón út á móti þeim með atgeirinn og sveiflaði honum gífurlega. Þegar við sáum þetta fylltumst við allir hugrekki og stukkum út honum til hjálpar. Friðjón hjó höfuðið af einum og annan hjó hann bókstaflega í tvennt. Guðmundur var engu síðri og hjó höfðu, handleggi og fótleggi af mörgum. Ef maður hlustaði vel á hann þá mátti heyra lágt en enga síður mjög dýrslegt urr í honum. Ég og Heimir stóðum hlið við hlið og smelltum kylfum okkar í andlit þeirra af einstakri siðprýði, ekki eins villimannslega og hinir tveir sem hjóu hendur og fætur af eins og þeim væri borgað fyrir það. Svo kom kallið. ALLIR INN. GO GO GO GO. Bessi hélt greinilega að hann væri staddur í einhverji asnalegri bíómynd um Víetnamstríðið. En inn forum við og brunuðum burt. Hvort við komumst alla leið veit enginn.

En við komust samt alla leið.

Böddi


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 21:29:23 / rauda

HetjuFriðjón

Hér kemur annar hluti af þremur um draumfarir mínar.

Þetta magnaða föruneyti hafði ekki hlaupið langt þegar þeir voru komnir í bobba aftur. Þeir voru staddir fyrir utan kirkjuna á Egilsstöðum og höfðu tekið sér smá hvíld. Eins og fyrr kom fram stóð hún ekki lengi. 30 uppvakningar birtust úr engu. Guðmundur reyndi sveiflaði eins og hann gat og stax féllu tveir. Ég tók upp einhvern trjádrumb sem legið hafði í moldinni og smellti í andlitin á þessum ófétum hægri vinstri. Blóðsletturnar flugu út um allt. En þeir voru of margir. Fjórir þeirra höfðu umkring veslings Hákon og kjömsuðu mikið á honum. Ferð hans í þessari sögu var lokið og allt virtist stefna í sömu örlög fyrir okkur hina. EN allt kom fyrir ekki. Inn í hópinn stökk vera. Í fyrstu hélt ég að um einhverja akurhænu væri að ræða en svo var ekki. Þetta var enginn annar en Friðjón Magnússon. Inn á milli þessara svakalegu skrímsla stóð hann, aðeins hann og atgeirinn. Uppvakningarnir hópuðust að honum og þá fóru fyrst hausar að fjúka. Það tók hann ekki nema mínútu eða svo að drepa allan ófénaðinn. Og ekki var það það furðulegasta, nei. Það furðulegasta var það að það var ekki blóðdropi á honum.  Ég og Gummi höfðum báðir tekið fjóra og Heimir og Bessi sinn hvorn, og við vorum allir holvotir. Friðjón tók í kringum tuttugu og sást ekki á honum. Það var greinilegt að hér var fagmaður á ferðinni. Hann tók strax stjórnina og sagði okkur að halda upp í kirkjuturninn til að gera nætursetu, því ekki var óhætt að ferðast að nóttu til. Enginn okkar gat sofið þessa nótt. Allstaðar heyrðust öskur, bæði af hræðslu og þjáningu. Enginn svaf. Enginn nema Friðjón. Þvílíkur fagmaður.

Snemma næsta morgunn lögðum við af stað. Við vissum ekkert hvað við áttum að gera að það var fullljóst að Friðjón var með það á hreinu. Bessi spurði hann hvert við vorum að fara. Það sem hann fékk til baka var einfalt. GRÓTHALTU KJAFTI EF ÞÚ VILT LIFA. ÞÚ KEMST AÐ ÞVÍ ÞEGAR VIÐ KOMUM ÞANGAÐ.  Enginn af okkur talaði það sem eftir var ferðarinnar.


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 21:21:31 / rauda

Hetjugummi

Hér eftirfarandi kemur saga. Hún er ekki sönn. Þetta er einungis byggt á draumförum mínum í gærnótt þar sem margir af nemendum ME komu fyrir. Þetta er aðeins fyrri hluti og kemur seinni einhvern tíman seinna ef ég nenni. Úti var kalt og drungalegt. Mikið hafði fennt nóttina áður og var því nokkuð kaf úti fyrir. Ég og Guðmundur vorum að búast til að hafa nætursetu inni í herberginu okkar þegar þrír menn komu inn. Þetta vakti mikla furðu okkar Guðmunds þar sem klukkan var að nálgast þrjú. Við þekktum þessa menn ekki því þetta voru busar sem við höfðum aldrei séð áður.. Ég tók strax eftir að þeir voru eitthvað furðulegir útlits. Þegar þeir löbbuðu inní ljósið tók ég eftir því, þeir voru allir blóðugir í framan og reyndar blóðugir úti um allt. Þá áttuðum við Gummi okkur á því, þeir voru uppvakningar. Ég brást harkalega við þessu og kastaði öllu lauslegu að þeim. En þetta stöðvaði þá ekki, hægði aðeins á þeim ef segja má. Rétt eftir þetta þegar allt virtist búið heyrði ég ógnvægilegasta öskur sem ég hafði nokkurn tíman heyrt. Það kom fyrir aftan mig. Þetta var enginn annar en Guðmundur Jónsson sjálfur sem hafði tekið sverðið sem hann fékk fyrir að stýra 300 ganginum til sigurs á einhverju gangamótinu. Hann stökk heljarstökk yfir mig og uppvakningana og lenti úti á gangi. Þar sveiflaði hann tvisvar sinnum og þrír hausar féllu. Hann hafði bjargað lífi mínu. Eftir þetta hljópum við niður stiganna og niður í anddyri þar sem við sáum Hákon, Heimi og Bessa. Þeir hrjúfruðu um sig í einu horninu við skóhillurnar, skelfingu lostnir þar sem fimm uppvakningabusar bjuggust undir átu. En þeir átu aldrei framar þvi aftur var sverði sveiflað og nú fuku ekki bara hausar, heldur allt saman. Hendur, fætur, fingur, tennur. Allt flaug þetta út um allt og varð maður að passa sig að fá þetta ekki í sig. Þegar yfir stóð var ekkert eftir að uppvakningunum. Guðmundur hafði gert þetta aftur. Þetta fimm manna föruneyti, búið til úr Reyðfirðingum og Seyðfirðingum hélt því af stað út í óvissuna. Við vorum ekki fyrr lagðir af stað þegar allt í einu réðust fimm uppvakningar á okkur. Og núna voru þetta ekki einungis busar. Í þessum hópi var góðvinur okkar hann Ívar Pétur. Enn einu sinni var sverði sveiflað. Tveir uppvakningar féllu strax. En útúr kennsluhúsinu streymdu uppvakningar svo tugum skiptu. Mikil hetja var Guðmundur en hann var enginn Jean-Claude Van Damme. Hann sveiflaði eins og hann gat og flugu margir hausar. En hann réð ekkert við þennan fjölda. Þegar hann var að búa sig undir undanhald sá ég að Ívar Pétur hafði laumast aftan að honum og var að gera sig líklegan til bítinga. Þá tók ég upp spjót sem lá í runnanum (ekki hugmynd hvernig það komst þangað) og negldi því í hann. Mér hafði hvort eð er aldrei líkað við hann. Ívar greyið skaust framhjá Guðmundi og inn í hópinn. Þá kom mikið hik á þennan uppvakninga hóp og var það greinilegt að Ívar Pétur var hátt settur meðal uppvakninga. Guðmundur stoppaði og sagði: You, you. You´ve got a fucking gift man. Síðan hljópum við burtu. Uppvakningarnir eltu okkur ekki strax.
Framhald næst. Ps. Ívar, ef þú lest þetta þá meina ég ekkert með þessu. Þetta voru alfarið draumfarir og á engan hátt vil ég þér neitt illt.
 Og meðan ég man, þeir sem hafa áhuga á að kaupa styttur af mér þá kemur ný sending á mánudaginn í herbergi 222.

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 19:24:37 / rauda

Gummi er í sturtu og er hótandi öllum

Já það er komið á hreint, Gummi er í sturtu og lætur illum látum. Hann spyr hvað hann eigi að gera við þetta skegg sitt. Mér er drullusama svo sem. Hvenær fær maður frið hérna spyr hann aftur. Það veit ég ekki segi ég til baka. Svo bullar hann eitthvað meir og ég fæ nóg og geng út. Ótrúlegur maður, ef mann má kalla. Ef þið mynduð sjá það sem ég sé núna myndi ykkur blöskra og vera drullusammála mér. Þettta er ekki mannlegt.
En þetta er ótrúlegt. Núna eru tveir fucking naktir menn inni í mínu herbergi. Þetta er hrottalegt. Árni Geir segir: Guðmundur er ekki ógeðslegur og styður Guðmundur það. En mér blöskrar bara. Hann stelur skónum mínum eftir að hafa flætt allt helvítis herbergið. Ótrúlegur maður.
En aðalatriði þessa pósts er það að ég hef verið fucking klukkaður og líkar mér það illa. Mér blöskrar. En drullum þessu af:

4 Störf sem ég hef unnið um ævina: Sundlaugarvörður, sjoppukall, bæjarstarfsmaður og fiskvinnslueitthvað
4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur: Sin City, Lord of the rings fyrsta, Snatch og The good, the bad and the ugly
4 staðir sem ég hef búið á: Reykjavík, Seyðisfjörður, heimavistin og Valaskjálf
4 staðir sem ég hef farið á í fríi: Danmörk, Portúgal, London og Krít
4 sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi: Prison Break, Lost, 24 og the shield(magnaður skítur)
4 síður sem ég heimsækji daglega: Einkabanki, atvr, fotbolti.net og bbc.com/sport
4 máltíðir sem ég held upp á: Engin ástæða til að nefna aðeins fjórar. Látum okkur nú sjá, morgunmatur, hádegismatur, kvöldmatur, laugardagsmatur hjá afa, Pizzumáltíðin heima á föstudögum, páskamaturinn, jólamaturinn, allar afmælismáltíðir, Sunnudagsmáltíðar, mánudagsmáltíðar, þriðjudagsmáltíðar, miðvikudagsmáltíðar, fimmtudagsmáltíðar, föstudagsmáltíðar, laugardagsmáltíðar og þakkagjörðamáltíðin klassíska.
4 bækur sem ég les oft: Les ekki bækur, of upptekin við að borða og spila FM
4 staðir sem ég vildi vera á núna: Krít, Pizza Hut, Andreas og á geðveikrahæli að leggja Gumma inn.
Ég klukka engan því þetta er hrottaleg aðferð við að kreista lífviljann úr mönnum. Bíddu aðeins, ég klukka Gumma Jóns og mér er drullusama þó að þú hafir verði klukkaður áður, ekki mín sök

Ok þá er allt komið. Þetta hefur verið hræðilegt og biðst ég vægðar því ég vil aldrei vera klukkaður aftur og sá sem það mun gera mun hljóta pyntingar of a lifetime.

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 20:02:29 / rauda

Sundskrímslið ógurlega

Lífið hefur leikið við mig undanfarið. Ekki mikið af ótrúlegum hamförum á síðustu dögum, endurnar í herberginu okkar Gumma eru loksins farnar og fyrirtækið mitt í Venusavela blómstrar. En ég er ekki lengi í paradís, það er á hreinu. Sigurganga mín í lífinu er á undanhaldi og hafa hrakfarirnar tekið við aftur. Þetta veit ég því það var gerð atlaga á líf mitt í sundi nú fyrr í dag. Og ekki bara einu sinni, heldur 17 sinnum. Fyrstu 15 skiptin sá ég aldrei hver var þar að verki. Aldrei heyrðist hljóð, engar öldur. Það var næstum eins og ég væri þarna einn í vatninu. En svo var ekki. Í þessi 15 skipti barðist ég fyrir lífi mínu þegar ég var annað hvort dregin niður í hyldýpið eða fleygt himinhátt í loftið þar sem ég hringsnérist og endaði með höfuðið í bakkanum. EN í 16 skiptið náði ég óþokkanum, þessu hræðilega skrímsli. Ég náði einum af gripörmum hans og ófreskjan byrjaði sprikla. En ég sleppti aldrei og að lokum birtist mér andlit. Mér blöskraði og ældi af hryllingi. Þetta var enginn annar en maðurinn sem hefur allt sitt líf reynt að gera útaf við mig. Þetta var Guðmundur Jónsson. Ég spurði hvern djöfulinn hann var að gera og hann svaraði: ekkert, og sló mig utan undir, svo fast að ég missti takið á gripörmum hans og einnig meðvitund. Þegar ég rankaði við mér var hann hvergi að sjá þannig að ég hélt áfram að synda. Svo kom að því að hann krækti í mig aftur og sagði: förum upp úr og það gerðum við. Seinna fórum við á pizzuhlaðborð þar sem hann viðurkenndi að honum þætti gott að fá sér sultu á pizzusneiðina. Mér blöskraði og ældi af hryllingi og var vinsamlegast beðinn að koma aldrei aftur í söluskálann.

Þið hafið verið að lesa verk eftir Böðvar Pétursson. Styttur af sjálfum mér eru til sölu í herbergi 222.

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.03.2006 23:41:18 / rauda

Desert Smeagol

Aðvörun: atriði í þessum pistli eru sannsöguleg. aðeins hefur nöfnum, atburðum og ýmsum öðrum staðreyndum verið breytt. Einnig eru sum atriði þessa pistils ekki við hæfi dýraverndunarsinna. Það var mánudaginn 31. ágúst árið 2001 sem Lardo Williams Quarterback Tampa Bay Buccanneers óð af stað út í eyðimörkina, hann notaði hest sinn Snotran Forrester til farar, en hitinn var óbærilegur. 25 gráður eru alltof mikið fyrir mann eins og Lardo og hann er ekki þekktur fyrir að fara út um dyr þegar svona óveður skellur á. Til að áætlunarverkið tækist, ákvað samstarfsaðili Lardos, að fylgja honum í leiðangurinn sem hefði getað reynst feigðarför. Samstarfsaðili Lardos fleygði sér á hestinn og förin hófst, ekkert mátti ranglega fara, engan tíma mátti missa. Til að þessi ferð tækist þurfti einkar snilldarlega áætlun og forgangsröðun varð að vera gallalaus. Því ákvað föruneytið að byrja á því að stoppa sem næst byrjunarreit og enda á staðnum sem var næstur endareit. Fyrsta stopp var í mjólkurbúðinni, en mjólk er uppistaða lífs og því var mjólkin eitt það mikilvægasta sem föruneytið þurfti að næla sér í. Þessi áætlun var vel heppnuð, á mettíma var alls kyns mjólk keypt og föruneytið hélt því ótrautt til næsta verkefnis. Lardo fór vitanlega fyrir förinni og var við stjórnvölinn á Snotrum Forrester. Snotur spretti úr spori og áður en ónefndur samstarfsaðili hans vissi af hafði Snotur staðnæmst og við blasti feiknarstórt gil. "Matur" sagði Lardo, og Snotur Forrester sleikti út um. Lardo teygði sig og tók upp 3 stykki slípaðar steinvölur. Hann beygði sig niður og starði ofan í sandinn. Eftir dágóða stund lokaði hann augunum. Samstarfsaðilinn horfði einbeittur á og sá Lardo lygna upp augunum, og honum sýndist hann sjá glott við tönn. Lardo horfði upp í gilið og tók snögga hreyfingu, svo snögglega hreyfði hann sig að ónefndur samstarfsaðili vissi ekki fyrr en fugl féll í sandinn við tær hans. Þetta var Smyrill. Lardo tók Smyrilinn upp, og sagði "af stað". Þeir óðu áfram í sandstorminum og nú var hitinn meiri háttar, Lardo kolsvitnaði og lét Snotur auka hraðann. Þeir komu loks á áfangastað, og afrakstri ferðarinnar var komið fyrir. Mjólk var drukkinn, Smyrill var eldaður og sögur flugu. Ég vil benda á að með þessari sögu vil ég gera allt annað en að móðga nokkurn, því þó þessi saga sé byggð á sannsögulegum persónum og atburðum, og nöfn persónanna í sögunni tengjast persónunum sem þau eru byggð á ekki á nokkurn hátt. takk fyrir

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3